Milli mála – Tímarit um erlend tungumál og menningu er alþjóðlegt veftímarit í opnu aðgengi gefið út af Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum (SVF) við Háskóla Íslands. Tímaritið kom fyrst út árið 2009, þá sem ársrit stofnunarinnar, en fékk núverandi heiti sitt árið 2012. Tímaritið er rafrænt og birtist árlega í Open Journal Systems vef Háskóla Íslands (https://ojs.hi.is/millimala). Milli mála birtir ritrýndar fræðigreinar á sviði erlendra tungumála, bókmennta, málvísinda, málakennslu og þýðingafræði en einnig birtir tímaritið þýðingar, viðtöl, ritdóma eða bókakynningar eftir því sem rúm leyfir hverju sinni. Sérhefti Milli mála eru helguð afmörkuðum viðfangsefnum og er ritstýrt af gestaritstjórum (sjá Greinakall).
Milli mála birtir greinar á íslensku, ensku, dönsku, þýsku, frönsku og spænsku.

Milli mála 2024(1) – sérhefti 

Í þessu þriðja sérriti Milli mála er 

Heftið í heild sinni má nálgast hér. 

Milli mála 2024(2)

Í öðru hefti 16. árgangs Milli mála eru fimm ritrýndar greinar  um bókmenntir, leikhúsmenningu og þýðingafræði, auk þýðinga á stuttum textum úr taílensku og spænsku.